Hellú...
Ég vil byrja þessa færslu á að þakka Ernu fyrir FRÁBÆRT afmæli á
laugardaginn... Takk æðislega Erna mín.. Þetta var ógeðslega gaman
og nú styttist óðum í svona partý hjá mér!!

jei jei jei... Á
morgun eru akkúrat 2 mánuðir í að ég verði tvítug! Hlakka ekkert
smá til!
Já, þessi snjór sem ég var að tjá mig um í síðustu færslu hefur
ekki ætlað að hanga lengi.. Enda farinn og ekkert eftir nema baaara
kuldinn! Hvað er það?!?!? Er ekki að fýla'etta... Finnst nú lágmark
að það sé þá allavegana snjór uppi í fjöllum svo maður geti rennt
sér eitthvað á bretti... En nei nei.. Við búum bara á ÍSlandi til
einskis... Held ég flytji bara til Spánar eða eitthvað...
Spánverjar hafa allt til alls.. Þeir hafa strendurnar og góða
veðrið ooooggg þeir geta farið upp í fjöll á skíði og bretti... Er
þetta ekki svindl? Við fáum eiginlega ekki neitt...

Já, já
ég get pirrað mig á ótrúlegum hlutum!
Er einhver annar en ég í letikasti? Nenni svo innilega ekki að
læra.. Er bara í allan morgun búin að vera að vesenast í
myspace-inu sem ég bjó mér til um daginn...
www.myspace.com/dorabo 
Búin
að setja einhverjar myndir og sonna... Veit samt ekkert hvað ég á
að gera við þetta... Er að þessu svona bara upp á funnið... Gaman
að vera memm...
Ég held að Erna sé búin að henda flestum myndunum mínum úr afmælinu
hennar inn á síðuna sína... Endilega kíkið á það..
www.blog.central.is/ernaoglilja
Já, ég er að fara á ROCKSTAR tónleikana!!!!!!!

Það verður
sjúkt! Fæ að sjá Dilönu á sviðið mar... Sjitturinn titturinn, get
ekki beðið! Svo er nottla EKKERT leiðinlegt að fá að sjá Storm og
Toby líka!!!

Öss...
Jæja.. Vonandi hefur fólk eitthvað meira um þetta að segja heldur
en færsluna mína um þennan blessaða snjó sem entist ekki lengi!
Verið hress, ekkert stress, bless!!!